We a good story
Quick delivery in the UK

Books by Ýmsir Höfundar

Filter
Filter
Sort bySort Popular
  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Ákveðin goðsögn fylgir ráni á peningaskápum en hún er sú, að þau séu framin af gömlum kempum sem vinni yfirvegað og skipulega að ráninu. Mál, sem kom upp í Norður Finnlandi, brýtur sannarlega í bága við hana. Þegar málið var tekið fyrir í héraðsdómi lét dómarinn þessi orð falla: – Strákar, þetta gæti orðið góð sjónvarpsmynd. Við skulum segja að höfuðpaurarnir hafi heitað Antti, 26 ára, Tomi, 24 ára og Kari, 23 ára. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Við sem störfum daglega við rannsóknir kynferðisbrotamála teljum okkur gjarnan vera ýmsu vana. Við höfum kynnst ótrúlegustu órum fólks og ranghugmyndum varðandi kynferðismál. Eftir nokkur ár í starfi þykjumst við hafa upplifað tímana tvenna og ekkert eigi eftir að reka á fjörur okkar sem komi á óvart. Það reyndist ekki rétt ályktun. Rannsókn þessa máls vakti óhug, jafnt þeirra sem voru nýliðar í slíkum rannsóknum og þeirra sem töldust reyndari. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Í sívaxandi greiðslukortavæðingu, þar sem reiðufé fer að vera æ sjaldséðara, verða rafrænar upplýsingar um greiðslukort æ oftar skotmörk óprúttinna aðila. Eftir miklu er að slægjast og getur tjón af heppnuðum afritunum einungis örfárra greiðslukorta numið milljónum króna. Í nóvembermánuði 2006 freistuðu tveir erlendir menn gæfunnar í þessum efnum hér á landi en höfðu ekki erindi sem erfiði. Lauk þar með að öllum líkindum löngum og farsælum ferli þeirra við þessa iðju víðs vegar um Evrópu.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Árið 1997 kom út bókin Lögreglan á Íslandi, stéttartal og saga; höfundar Þor- steinn Jónsson og Guðmundur Guðjónsson. Bókin var gefin út í samvinnu við Landssamband lögreglumanna með tilstyrk dómsmálaráðuneytisins. Hér á eftir er samantekt Guðmundar byggð á söguþáttum hans um lögregluna í Reykjavík. Í þeirri bók er gerð grein fyrir heimildum og því ekki tíundað sérstaklega varðandi einstök atriði í þessari samantekt. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    18. september árið 2000 var hollenskur maður handtekinn í Flugstöð Leifs Eiríks- sonar. Hann var á leið til Bandaríkjanna en starfsmönnum Flugleiða og lög- reglunni á vellinum þótti hann grunsamlegur. Lögreglumenn tóku að sér að tala við hann og athuga vegabréf hans. Það kom í ljós að þessi farþegi var að reyna að smygla e-töflum til Bandaríkjanna.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Í lok júlí 2000 kom krúnurakaður maður, sem sagðist heita Morris Edina, til vakthafandi aðalvarðstjóra hjá lögreglunni í Åbo og sagðist vilja sækja um hæli í Finnlandi. Maðurinn var ekki með nein skilríki meðferðis og engan farangur. Í samræðum við aðalvarðstjórann sagðist maðurinn hafa komið til Finnlands með flugi frá Ungverjalandi. Hann sagðist vera af albönskum og rúmenskum ættum og hann gæti ekki lengur búið í hinu stríðshrjáða Kosovo vegna ofsókna sem hann sætti þar vegna þjóðernis síns. Tekið var við umsókn hans um hæli og síðan tók finnski Rauði Krossinn við manninum og flutti hann í móttökumiðstöð fyrir flóttamenn í Metallgatan. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Í Österbotten í Finnlandi lauk vetrarfríi skólanna árið 1997 sunnudaginn 2. mars. Alla vikuna á undan hafði verið skínandi gott veður og svo var líka þennan sunnu- dag, síðasta daginn áður en skólarnir hófust á ný. Í byrjun árs hafði verið frekar kalt og mikill snjór. Þess vegna var tilvalið að stunda alls kyns vetraríþróttir, svo sem skíðagöngu, skíðasvig og skautahlaup. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Tveir einstæðir menn, sem við skulum kalla Matti Mainio og Jussi Juonio, bjuggu árið 1999 í húsi sem í voru tvær litlar íbúðir og voru þeir hvor með sína íbúðina á leigu. Þetta var í Jyllintaival sem er nokkra kílómetra frá þéttri byggð í bænum Kurikka. Íbúðirnar sem þeir leigðu voru báðar tveggja herbergja með sérinngangi. Matti Mainio var 65 ára elli- og örorkulífeyrisþegi en hann var fatlaður vegna meiðsla í fótlegg og varð að nota staf til að styðja sig við þegar hann gekk. Matti var búinn að búa í húsinu í mörg ár. Jussi Juonio var 56 ára og hafði fram að þessu framfleytt sér með ýmiss konar lausavinnu. Hann átti við áfengisvandamál að stríða sem dró mjög úr möguleikum hans á að fá vinnu og þegar þetta gerðist lifði hann á bótum frá sveitarfélaginu. Jussi hafði flutt inn í sína íbúð 1999. Matti og Jussi vörðu báðir miklu af tíma sínum í að innbyrða fljótandi fæðu. Jussi, sem var betur á sig kominn, hjólaði næstum daglega í miðbæinn í Kurikka þar sem hann hitti menn með sama áhugamál. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £2.99

    Frásögn mín fjallar um bankarán sem hafði í för með sér að Morten Mortensen lögreglumaður lét lífið. Auk þess var gíslataka hluti af málinu. Margir áttu um sárt að binda vegna þessa máls, aðallega fjölskylda Mortens en einnig þeir mörgu gíslar sem komu við sögu. Málið hafði mikil áhrif á samstarfsfélaga Mortens og margir þeirra munu aldrei gleyma því. Svo seint sem í vikunni er ég sat og skrifaði um málið nefndi einn samstarfsfélagi minn að í hvert sinn sem hann sæi eða læsi um glæpamenn þá leitaði hugurinn ósjálfrátt til Mortens. Þau miklu áhrif sem málið hafði á samstarfsmenn Mortens eru kannski eitt af því sem gerði það að verkum að fyrst nú, 8 árum eftir atburðinn, er sagan skrifuð og þá eftir áskorun. Hún skal rituð af því að hún er hluti af sögu dönsku lögreglunnar. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Drengskapur í leik er grundvöllur allrar íþróttaiðkunar og ekki leikur vafi á að einmitt sá grundvöllur á stóran þátt í að hrífa alla heimsbyggðina með sér. Mikil- vægi íþrótta í uppeldi, spennu og sanngjarnri keppni hefur farið vaxandi í áraraðir og mikilvægið hefur vaxið með þróun nútíma fjölmiðlasamfélags. Knatt- spyrna hefur oft verið í fararbroddi með ýmsar nýjungar til að gleðja þá fáu sem eru nógu heppnir til að vera á áhorfendapöllunum og þær milljónir manna um allan heim sem setjast fyrir framan sjónvarpið þegar útsendingar byrja. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Lítill drengur með glettnisblik í augum heilsaði feimnislega og afréð svo að snúa sér aftur að leikjum sínum og leyfa okkur fullorðna fólkinu að drekka kaffið saman í næði. Þetta var mánudaginn 5. janúar 1987. Það var fyrsti vinnudagur minn sem lögregluþjónn við götulögregludeildina í Pori. Félagi minn var reyndur og hress lögregluþjónn að nafni Matti sem tók að sér að kenna nýgræðingi undirstöðuatriði við umferðargæslu. Síðdegis var Saabinum snúið á leið til Nakkila, þar sem Matti bjó, og þar hafði konan hans hitað kaffi handa okkur. Matti sýndi mér hreykinn fjölskyldu sína. Það sem ég man skýrast frá þessari notalegu samverustund er einmitt litli, svarthærði Lauri sem ég raulaði um í huga mér gömlu barnagæluna „Litli, litli Lauri". Eftir að við höfðum verið saman á óteljandi vöktum skildi leiðir okkar Matta þegar ég var færður í starf rannsóknarlögreglumanns á lögreglustöðinni í Pori þann 1. febrúar 1988. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Málið sem hér um ræðir, fjallar um innflutning á hassi til Íslands frá Danmörku. Höfuðpaurinn í málinu, Ari Andrason, sem er vel þekktur úr fíkniefnaheiminum hér á landi, hefur yfirleitt þann háttinn á að koma málum þannig fyrir að ef allt fer á versta veg eru það ávalt einhverjir minni spámenn sem sitja í súpunni.Þetta mál var engin undantekning hvað það varðar en þar koma m.a. við sögu hlaðmenn er störfuðu hjá Flugleiðum á Keflavíkurflugvelli.Sá háttur er yfirleitt hafður á við rannsóknir stærri fíkniefnamála að þau fá heiti sem hefur skírskotun í viðkomandi mál og í þessu tilfelli var ákveðið að láta það heita „Hlaðmannamálið".Þetta mál er ekkert ólíkt mörgum öðrum fíkniefnamálum þar sem höfuðpaurarnir nýta sér neyð annarra til að taka þátt og ef illa fer þá er yfirleitt reynt að koma málum þannig fyrir að þessir ógæfumenn taki á sig alla sök.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Atburðir þessir áttu sér stað veturinn 1995. Nöfnum sögupersónanna hefur verið breytt, en að öðru leyti er frásögnin sönn. Ég ætla ekki að nefna borgina eða staðinn þar sem atburðirnir gerðust því þeir sem verða fyrir ofbeldi, einkum ein- hvers nákomins, finnst það ákaflega auðmýkjandi. Þegar það er alvarlegs eðlis er erfitt að kryfja það til mergjar og yfirstíga það. Þessi túlkun og umfjöllun snertir ekki aðeins einstaklingana sem voru í hringiðu atburðarásarinnar, heldur varðar og getur sært aðra íbúa í þorpsins. Ég ætla ekki að leita að sökudólgi aðeins sýna hversu erfið mannleg samskipti geta stundum orðið. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Sagan hófst einn af þessum dæmigerðu vormorgnum í Reykjavík. Komið var fram í endaðan apríl og langur vetur að baki. Úti var rigningarsuddi og svalt í veðri. Neyðarlínan fékk upphringingu kl: 06:49. Tilkynnt var um grunsamlegar manna- ferðir á Skólavörðustíg og talið að um hugsanlegt innbrot væri að ræða í listaverkaverslun sem var til húsa ofanvert við nefnda götu. Tilkynnandi var maður sem vann við blaðburð í götunni áður en hann hélt til hefðbundinna starfa sinna sem kennari við einn af grunnskólum borgarinnar. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Miðvikudagurinn 30. júní 1999 hófst eins og hver annar vinnudagur hjá tveimur lögregluþjónum á lögreglustöðinni í Malmö. Eftir rólega dagvakt frá 06:00–13:00 áttu þeir að vera á kvöldvakt og byrjuðu klukkan 21:00 við útkallsstöðina á svæði lögreglustöðvarinnar Centrum í Malmö. Vaktin byrjaði með hefðbundinni yfirferð á hættumati og upplýsingum um hvað hefði gerst síðustu tímana. Þeir áttu að ljúka vaktinni klukkan 06:00 næsta dag. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Það virðast engin takmörk fyrir því hverju menn stela. Það sem er verðlaust drasl í augum eins er dýrgripur í augum annars. Hlutur, sem blasir við augum manns daglega, án þess að maður velti fyrir sér verðgildi hans, kann að vera dýrgripur í augum einhvers annars, verðmæti sem hægt er að gera sér fé úr, ef hægt er að koma höndum yfir hann án þess að til sjáist. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Það skrítnasta í starfi lögreglumanna, er sú staðreynd að sjaldnast er vitað hvaða mál verða stórmál fyrr en rannsókn er vel á veg komin. Þess vegna þarf að sinna öllum málum vel, því aldrei er að vita hvert þau leiða. Ég ætla að segja ykkur frá einu slíku máli sem naut töluverðrar fjölmiðlaumfjöllunar þegar það var komið á dómstig og ekki síður eftir að dómur féll: Héraðsdómslögmaður sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn þremur ungum stúlkum.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £2.99

    Innbrot, þrjú morð og fá ummerki á staðnum eftir þá sem verkið unnu. Þrefalda morðið í Sörum er án efa mest umtalaða sakamál í Noregi eftir stríð. Enn eru mjög fáir sem vita hvað gerðist eiginlega í hjáleiguhúsinu á Orderud-býli tveim nóttum fyrir hvítasunnudag árið 1999. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Í seinni tíð hefur það komið fyrir að erlendir afbrotamenn komi hingað í „heim- sókn". Hér segir frá þremur mönnum sem komu hingað og ætluðu að dvelja hér skamma stund. Þeir brutust inn á tveimur stöðum og stálu miklum verðmætum. Mennirnir voru handteknir þegar þeir ætluðu að senda þýfið úr landi. Hér er sagt frá þessu máli og rannsókn þess. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Manndráp eru frekar fátíð á Íslandi og vandlega skipulagðar manndrápstilraunir eru enn sjaldgæfari. Þau fáu manndráp og manndrápstilraunir sem þessi tiltölu- lega friðsama þjóð þarf að hafa áhyggjur af eru yfirleitt atburðir sem eiga sér stað í ölæði eða annarri vímu.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Í júlí 1994 gerðist sá sjaldgæfi atburður að sending sem innihélt íslenska peninga- seðla hvarf á leið sinni frá Seðlabanka Íslands til Hambros Bank í London. Nokkru síðar fóru seðlar úr sendingunni að koma inn í íslenska banka og þá þótti ljóst að um þjófnað var að ræða. Rannsóknarlögregla ríkisins var sett inn í málið og eftir rannsókn þar sem öll sund virtust lokuð á stundum tókst að leysa þessa ráðgátu. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Við rannsókn þessa máls kom í ljós hversu mikið ungt fólk notar stefnumótasíður á internetinu. Þetta mál snerist um röð nauðgana þar sem raðnauðgarinn, Peder, hafði komist í samband við fórnarlömb sín í gegnum stefnumótasíður á internetinu. Hann sendi konunum ljósmyndir af öðrum en sjálfum sér og lýsti sjálfum sér sem ungum, myndarlegum, farsælum og vel efnuðum manni. Hann bauð þeim að verða ástkonur hans og að hann mundi greiða þeim mikið fé fyrir kynlíf. Hann sagðist ferðast mikið og hefði ekki tíma til að eiga kærustu. Eftir langan tíma í SMS-samskiptum, tölvupóstsamskiptum og mörg símtöl, heimsóttu konurnar hann og sáu þá að hann var alls ekki sá sem hann gaf sig út fyrir að vera og hann hafði allt annað í hyggju þegar þær heimsóttu hann en þær héldu.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Það er því miður staðreynd að til eru foreldrar sem misnota börnin sín, andlega og líkamlega. Það finnst okkur flestum skelfilegt og óhugnanlegt. Það er hins vegar óskiljanlegt þegar ofbeldi foreldranna gengur svo langt að það leiðir barnið til dauða. Í máli því, sem hér verður sagt frá og kom til kasta ofbeldisnefndar Söderort lögreglunnar þann 9. febrúar 1999, reyndi mikið á tilfinningar þeirra sem sáu um rannsókn málsins. Barnið, sem myrt var, var aðeins 19 mánaða gamalt. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Eftirfarandi saga lýsir því hvernig lítilfjörlegt atvik, það að tveir menn, hvor öðrum ókunnir, áttu samtímis leið um brautarpall á fáfarinni lestarstöð eina örskotsstund á vetrarkvöldi, hafði skelfileg áhrif á örlög þeirra beggja, áhrif sem aldrei verða afmáð eða dregin til baka. Annar varð næstum morðingi – hinn mun aldrei lifa því lífi sem hann ætlaði sér. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Greining fingrafara hefur lengi verið mikilvæg við rannsóknir á sakamálum. Hér á eftir er samantekt um sögu fingrafararannsókna frá upphafi og sagt frá þeim íslensku rannsóknarlögreglumönnum sem hófu skráningu og úrvinnslu fingrafara við rannsóknir sakamála hérlendis. Þá er líka lýst í stuttu máli þróun tæknirann- sókna hjá lögreglunni hér á landi. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Vorið 1993 voru dyrnar að gamla réttarsalnum númer 73 í þinghúsinu í Osló opn- aðar vegna eins umfangsmesta eiturlyfjamáls sem upp hafði komið í Noregi. Fjöl- margir einstaklingar voru flæktir í málið og það sem almenningi þótti sérstaklega alvarlegt var að starfsmenn á Fornebu flugvellinum í Osló höfðu leikið veigamikil hlutverk í smyglinu. Það sem hratt þessu máli af stað voru upplýsingar sem sænsk tollyfirvöld höfðu þefað uppi um mann frá Norrköping sem bjó í Pattaya í Thailandi. Hann hafði fengið háa peningaupphæð senda frá Svíþjóð til heimilis síns í Thailandi. Um leið kom í ljós að maður frá Osló hafði líka sent honum peninga. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Eftirfarandi saga er frá miðjum áttunda áratugnum, þegar sírenurnar á „Svörtu Maríu" voru handstýrður, forgangsljósin voru rauð og lífið ekki eins flókið og það er nú – eða hvað? Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £5.99

    Sannleikurinn er ekki eingöngu sagna bestur, heldur oftast ótrúlegri en besti skáldskapur. Það er væntanlega þess vegna sem bækurnar „Norræn sakamál" selj- ast árlega í stóru upplagi á hinum Norðurlöndunum. En í bókunum segja lögreglu- menn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka. Nú hafa íslenskir lögreglumenn gengist til liðs við norræna félaga sína og fyrsta bókin í þessum bókaflokki er komin út á íslensku, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum sem taka hinum erlendu ekkert eftir hvað varðar spennu og dulúð. Þess er vandlega gætt að fyllsta trúnaðar sé gætt í frásögnum lögreglumannanna. Dómur hefur gengið í öllum málunum sem fjallað er um og þau því orðin opinber. Þrátt fyrir þetta ákváðu íslensku lögreglumennirnir að sýna fulla aðgát í nærveru sálar og forðast að nota rétt nöfn íslenskra sakamanna í sögunum sem hér fara á eftir, bæði þeirra vegna og ekki síður aðstandanda þeirra. Íslensku sögurnar endurspegla störf lögreglumanna, lýsa vel starfsumhverfi þeirra og eljusemi við rannsókn mála sem oft virðast óleysanleg. Í bókinni er einn- ig rakin saga lögreglunnar í Reykjavík til ársins 1918 og merkileg saga fingrafara- rannsókna hérlendis þar sem fyrsta sönnun glæps með fingrafari sannaði sekt manns sem var með pottþétta fjarvistarsönnun og hefði annars sloppið undan klóm réttvísinnar. Það er von okkar lögreglumanna að þessi bók sé kærkomin viðbót í þá stóru flóru sakamálabóka fyrir er á markaðinum, því hvergi er að finna sannari glæpa- sögur en einmitt hér. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £2.99 - 4.99

    Ránið og morðið á tæplega tveggja ára syni Charles Lindbergh árið 1932 hefur oft verið kallað afbrot 20. aldarinnar. Kannski er það vegna þess að verknaðurinn þótti sérstaklega grimmúðlegur. En sennilega er það mest vegna þess að Charles Lindbergh var hetja í augum Bandaríkjamanna og fólks um allan heim eftir að hann flaug einn yfir Atlantshafið 1927.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Klukkan 23.40 á aðfangadagskvöld var hringt í neyðarnúmerið 112. Maðurinn í símanum sagði einfaldlega að hann hefði framið morð. Lögreglan spurði hver hann væri, hvar hann væri og hver hinn látni væri. Hann svaraði þessum spurningum og lofaði að halda kyrru fyrir. Lögreglan sendi tvo bíla á staðinn og einnig var sendur sjúkrabíll til íbúðarinnar sem var í bæjarhlutanum Angered í Gautaborg. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

Join thousands of book lovers

Sign up to our newsletter and receive discounts and inspiration for your next reading experience.