We a good story
Quick delivery in the UK

Books in the Múmínálfarnir series in order

Filter
Filter
Sort bySort Series order
  • by Tove Jansson
    £3.99

    Fylgstu með lífi múmínsnáðans, fjölskyldu hans og vina, allar fjórar árstíðirnar! Hér segir frá fyrsta vordeginum, þegar Snúður kemur til baka úr vetrarferðalaginu sínu, og björtum sumarnóttum þegar múmínsnáðinn leysir ráðgátu. Við upplifum litadýrð haustins, en þá finna múmínsnáðinn og Snabbi flöskuskeyti og leggja af stað í leiðangur í leit að nýjum vini. Loks kynnumst við myrkum frosthörkum vetrarins þegar múmínálfarnir liggja í dvala og bíða eftir því að sólin láti aftur sjá sig.Komdu með í ferðalag í friðsælan og tímalausan heim múmínálfanna þar sem múmínsnáðinn, múmínpabbi og múmínmamma lenda í ótal spennandi ævintýrum ásamt vinum sínum snorkstelpunni, Snabba, Míu litlu, Snúði, Pjakki, Fillífjonkunni og öllum hinum. Til hvaða undraheima skyldu þau ferðast næst og hvaða ævintýraverur hitta múmínsnáðinn og vinir hans á leiðinni?Ævintýraveröld múmínálfanna, sköpunarverks Tove Jansson, fangar ímyndunarafl barna jafnt sem fullorðinna. Fyrstu sögurnar urðu til árið 1945 og síðan hafa múmínfjölskyldan og vinir hennar eignast aðdáendur um allan heim og birst í bókum og sjónvarpsþáttum á meira en 35 tungumálum. Einstakur og allt að því goðsagnakenndur ævintýraheimur Tove Jansson hefur sópað til sín bókmenntaverðlaunum, svo sem H.C. Andersen verðlaununum, Bókmenntaverðlaunum Selmu Lagerlöfs og mörgum fleirum.

  • by Tove Jansson
    £3.99

    Múmínsnáðinn, vinir hans og fjölskylda leggja upp í nýjar ævintýraferðir. Hér lærir múmínsnáðinn um vináttu, að deila með öðrum, fyrirgefningu og hugrekki. Í einni sögunni týnir múmínsnáðinn dýrmætum sjónauka og verður að finna hann aftur áður en það er um seinan. Í annarri fara vinirnir út í eyðieyju í leit að söng hafsins. Í þeirri þriðju finnur múmínsnáðinn einstakan fjársjóð: perlu sem er á litinn eins og miðnæturtunglið. Komdu með og upplifðu allar hinar sögurnar sem eiga sér stað í múmíndalnum.Komdu með í ferðalag í friðsælan og tímalausan heim múmínálfanna þar sem múmínsnáðinn, múmínpabbi og múmínmamma lenda í ótal spennandi ævintýrum ásamt vinum sínum snorkstelpunni, Snabba, Míu litlu, Snúði, Pjakki, Fillífjonkunni og öllum hinum. Til hvaða undraheima skyldu þau ferðast næst og hvaða ævintýraverur hitta múmínsnáðinn og vinir hans á leiðinni?Ævintýraveröld múmínálfanna, sköpunarverks Tove Jansson, fangar ímyndunarafl barna jafnt sem fullorðinna. Fyrstu sögurnar urðu til árið 1945 og síðan hafa múmínfjölskyldan og vinir hennar eignast aðdáendur um allan heim og birst í bókum og sjónvarpsþáttum á meira en 35 tungumálum. Einstakur og allt að því goðsagnakenndur ævintýraheimur Tove Jansson hefur sópað til sín bókmenntaverðlaunum, svo sem H.C. Andersen verðlaununum, Bókmenntaverðlaunum Selmu Lagerlöfs og mörgum fleirum.

  • by Tove Jansson
    £2.99 - 3.99

    Mía litla er sannkallaður eldibrandur; þó hún sé lítil er hún áköf, klár og hugrökk. Hún er einn af bestu vinum múmínsnáðans. Mía litla vill sjálf fá að ráða ferðinni og eitthvað spennandi á sér stað hvert sem hún kemur. Það er varla hægt að hugsa sér betri ferðafélaga í ævintýraleiðangur en í þetta sinn snýst ævintýrið um Míu litlu sjálfa!Komdu með í ferðalag í friðsælan og tímalausan heim múmínálfanna þar sem múmínsnáðinn, múmínpabbi og múmínmamma lenda í ótal spennandi ævintýrum ásamt vinum sínum snorkstelpunni, Snabba, Míu litlu, Snúði, Pjakki, Fillífjonkunni og öllum hinum.Til hvaða undraheima skyldu þau ferðast næst og hvaða ævintýraverur hitta múmínsnáðinn og vinir hans á leiðinni?Ævintýraveröld múmínálfanna, sköpunarverks Tove Jansson, fangar ímyndunarafl barna jafnt sem fullorðinna. Fyrstu sögurnar urðu til árið 1945 og síðan hafa múmínfjölskyldan og vinir hennar eignast aðdáendur um allan heim og birst í bókum og sjónvarpsþáttum á meira en 35 tungumálum. Einstakur og allt að því goðsagnakenndur ævintýraheimur Tove Jansson hefur sópað til sín bókmenntaverðlaunum, svo sem H.C. Andersen verðlaununum, Bókmenntaverðlaunum Selmu Lagerlöfs og mörgum fleirum.

  • by Tove Jansson
    £2.99 - 3.99

    Fylgist með múmínsnáðanum og vinum hans leika leynilöggur og takast á við ýmsar ráðgátur: Hvert leiðir dularfulla rauða slóðin okkur? Hver stal hálsfesti frú Fillífjonku? Hvað varð um frímerki hemúlsins? Og hvað í ósköpunum kom eiginlega fyrir allan farangurinn í ferðatösku frænkunnar?Komdu með í ferðalag í friðsælan og tímalausan heim múmínálfanna þar sem múmínsnáðinn, múmínpabbi og múmínmamma lenda í ótal spennandi ævintýrum ásamt vinum sínum snorkstelpunni, Snabba, Míu litlu, Snúði, Pjakki, Fillífjonkunni og öllum hinum.Til hvaða undraheima skyldu þau ferðast næst og hvaða ævintýraverur hitta múmínsnáðinn og vinir hans á leiðinni?Ævintýraveröld múmínálfanna, sköpunarverks Tove Jansson, fangar ímyndunarafl barna jafnt sem fullorðinna. Fyrstu sögurnar urðu til árið 1945 og síðan hafa múmínfjölskyldan og vinir hennar eignast aðdáendur um allan heim og birst í bókum og sjónvarpsþáttum á meira en 35 tungumálum. Einstakur og allt að því goðsagnakenndur ævintýraheimur Tove Jansson hefur sópað til sín bókmenntaverðlaunum, svo sem H.C. Andersen verðlaununum, Bókmenntaverðlaunum Selmu Lagerlöfs og mörgum fleirum.

Join thousands of book lovers

Sign up to our newsletter and receive discounts and inspiration for your next reading experience.