We a good story
Quick delivery in the UK

Books by Ýmsir Höfundar

Filter
Filter
Sort bySort Popular
  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Það er föstudagskvöldið 8. júní árið 2007. Fagurt veður og fuglasöngur, fólk í göngutúr, sumir að ljúka við vinnu í garðinum sínum eftir sólbjartan dag. Börn að koma inn eftir leiki kvöldsins og sólin að hníga til viðar. Lítið, friðsælt byggðarlag á Vestfjörðum verður í brennidepli eftir skamma stund.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Klukkan 02.50 aðfaranótt laugardagsins 1. ágúst 2003 barst lögreglunni tilkynning um að Sonja, sem var tíu ára, væri horfin frá heimili sínu í bænum Mjels. Hún hafði síðast sést um klukkan 10.00 að morgni föstudagsins þegar eldri bróðir hennar fór út. Ákveðið hafði verið að Sonja ætti að vera heima þennan dag því að hún átti að hleypa sótaranum inn þegar hann kæmi til að líta á skorstein hússins. Lík Sonju fannst við skátaskála í Flamstedskóginum klukkan 18.15 á laugardeginum. Í ljós kom að hún hafði verið misnotuð kynferðislega og kyrkt.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £5.99

    Bókin Norræn sakamál kemur nú út í annað sinn. Fyrsta bókin, sem kom út á síðasta ári, hlaut góðar viðtökur sem gáfu til kynna að efni hennar væri áhugavert.Norræn sakamál er ritröð sem koma mun út árlega. Bækurnar bera allar sama nafn en eru auðkenndar með ártali þess árs sem útgáfa hverrar um sig á sér stað.Í bókunum eru frásagnir af störfum lögreglumanna á Íslandi og Norðurlöndum. Þrátt fyrir nafnið, Norræn sakamál, er langt frá því að bækurnar fjalli eingöngu um sakamál og rannsóknir þeirra. Bækurnar eru um störf lögreglu almennt og gefa þess vegna lesendum nokkra innsýn í störf lögreglumannsins, sem eru afar fjölbreytt og krefjandi. Fæstir gera sér grein fyrir í hverju lögreglumenn geta lent við störf sín enda viðfangsefnin fjölbreyttari en hægt er að ímynda sér.Lesendum gefst færi á að nálgast efnið frá öðru sjónarhorni ekki síst vegna þess að greinarnar eru skrifaðar af þeim lögreglumönnum sem annast hafa rannsóknir viðkomandi mála eða vettvangsstjórn.Öll lögreglumál eru viðkvæm, en leitast er við að greina frá staðreyndum á svo hlutlausan og faglegan hátt sem kostur er.Efni bókarinnar er fjölþætt, þar gefst t.d. kostur á að lesa um friðargæslustörf Íslendinga í Bosníu-Herzegóvínu, vandaða tæknivinnu íslensku lögreglunnar og hina endalausu baráttu við náttúruöflin á Íslandi svo sem snjóflóð og snjóflóða- hættu.Ég vona að lesendur verði einhvers vísari við lestur bókarinnar.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Það er ólíku saman að jafna að vera rannsóknarlögreglumaður úti á landi eða á höfðuðborgarsvæðinu. Enda þótt minna sé um alvarleg afbrot úti á landi eru aðstæður þar oft erfiðar og sjaldan sem lögreglumenn fá slíka aðstoð sem lýst er í þessari frásögn.Myndin gæti verið frá sviði sögunnar en er það ekki. Hún er frá Bíldudal. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Í desember 1993 og janúar 1994 var óvenjumikil rigning í Danmörku og þegar regnið var sem mest þann 5. og 6. janúar mældist úrkoman 132 mm, bara þessa tvo daga. Þetta óvenjulega veðurfar leiddi af sér háa vatnsstöðu í straumvötnum og hafði áhrif á hafstrauma. Þessi vatnsveður höfðu það í för með sér að litlu mun- aði að hugtakið ,,fullkomið morð" yrði að veruleika. Fimmtudaginn 6.janúar kom örvæntingarfull móðir til lögreglunnar í Århus. Hún greindi frá því, með grátstafinn í kverkunum, að 31 árs gömul dóttir hennar, Kirsten, væri horfin. Þetta var upphafið af einu óhugnanlegasta morðmálinu sem hafði komið við sögu lögreglunnar í Århus, jafnvel í allri Danmörku. Við rannsókn- ina var komið víða við og hún leiddi m.a. af sér lagabreytingu og yfirheyrslur um siði og venjur þjóðflokka í Afríku. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Sá hörmulegi atburður gerðist í maí 2001 í Reykjavík að barn lést af völdum heilaáveka sem rekja mátti til þess að það var hrist heiftarlega. Læknar á Landsspítala, þar sem barnið lést, sögðu lögreglu frá grunsemdum sínum um að barnið hefði verið hrist og áverkar bentu til einkenna „Shaken Baby Syndrome". Það var síðar staðfest með krufningu og sérfræðirannsókn á sýnum úr hinum látna. Böndin bárust fljótlega að dagforeldrum þar sem barnið hafði verið í daggæslu. Um var að ræða fyrsta mál sinnar tegundar sem lögreglan á Íslandi rannsakaði.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £2.99

    Á árinu 2002 var sýndur í sjónvarpinu þáttur í þáttaröðinni Sönn íslensk sakamál. Þátturinn bar nafnið ,,Hinn fullkomni glæpur". Hann fjallaði um tvö óleyst ránsmál frá árinu 1995. Sýning þessa sjónvarpsþáttar átti sinn þátt í því að rannsókn þessara mála var hafin á ný þegar flestir höfðu gefið upp vonina um að þau leystust. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £2.99

    Hryðjuverk í víðasta skilningi er hugtak sem hefur verið til staðar svo lengi sem menn hafa deilt í heiminum og viðræður hafa ekki getað leyst málin og því hafa menn gripið til harðari aðgerða til að þvinga kröfur sínar í gegn. Það sem einkennir hryðjuverk er að stríðið, sem er háð, er háð í leyni og fórnarlömbin eru aðallega óbreyttir borgarar sem af tilviljun eru staddir þar sem hryðjuverkamaðurinn, sem er rekinn áfram af pólitík eða trú, ákveður að fremja hryðjuverkið. Á seinni hluta 20. aldar var heimurinn þjakaður af mörgum svæðisbundnum hryðjuverkaógnum og er þá vandinn í Palestínu undanskilinn en hann hefur sett mark sitt víðar en í Mið-Austurlöndum, einnig í Danmörku. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Árið 1997 kom út bókin Lögreglan á Íslandi, stéttartal og saga; höfundar Þor- steinn Jónsson og Guðmundur Guðjónsson. Bókin var gefin út í samvinnu við Landssamband lögreglumanna með tilstyrk dómsmálaráðuneytisins. Hér á eftir er samantekt Guðmundar Guðjónssonar, yfirlögregluþjóns hjá ríkislögreglustjóran- um, byggð á söguþáttum hans um lögregluna í Reykjavík, svo og öðru efni sem í bókinni er, þar á meðal á frásögnum annarra um löggæslu utan Reykjavíkur, ein- kennisfatnað löggæslumanna og fleira. Í þeirri bók er gerð grein fyrir heimildum og því ekki tíundað sérstaklega varðandi einstök atriði í þessari samantekt. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Helgin byrjaði eins og aðrar helgar. Tiltölulega rólegt hafði verið á helgarvaktinni hjá rannsóknarlögreglu ríkisins, RLR, það sem af var. Þar sem lögum hefur verið mikið breytt þarf í stuttu máli að gera grein fyrir nokkrum atriðum sem giltu þegar RLR var til en rannsóknarlögregla ríkisins var lögð niður 1. júlí 1997. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Athugasemd, sem var varpað fram á einum af reglubundnum fundum toll- og skattyfirvalda með efnahagsbrotadeild lögreglunnar í Álaborg, hafði í för með sér að vorið 2000 hófst rannsókn á hugsanlegum vændishúsarekstri konu að nafni Mette (breytt nafn). Mette var gift og átti þrjú börn, þar af tvö smábörn. Fjölskyldan bjó í einbýlishúsi í nágrenni Álaborgar og líf hennar virtist vera eins og annarra fjölskyldna. Rannsóknin leiddi til þess að um einu og hálfu ári síðar var Mette ákærð fyrir rétti í Álaborg fyrir brot á 228. grein í dönsku hegningarlögunum sem varðar vændishúsarekstur. Hún var ákærð fyrir að hafa rekið vændishús í Frederikshavn, Viborg, Randers, Álaborg og Viby um átta ára skeið frá 1992 og haft að yfirvarpi að um nuddstofur væri að ræða. Þá var hún ákærð fyrir að hafa haft rúmlega 8 milljónir danskra króna í tekjur af þessum rekstri á tímabilinu og ekki gefið þær tekjur upp til skatts. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Að lenda í lífshættu er eitthvað sem flestir lögreglumenn upplifa einhvern tímann í starfi sínu og slíkir atburðir gera ekki boð á undan sér. Þá þarf að bregðast við á örskotsstundu og taka augnabliksákvarðanir. Eftir á hefur maður oft hugleitt hvort brugðist hafi verið rétt við og hve mikil hættan hafi raunverulega verið? Ég ætla að fara yfir atburð sem ég og félagi minn lentum í aðfaranótt sunnudags í febrúar- mánuði 1997. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Frosti Sæmundsson rannsóknarlögreglumaður, sem þýddi þessa grein úr norsku, var búsettur í Noregi í 15 ár. Hann bjó í bænum Bryne, þar sem morðið, sem hér er til umfjöllunar var framið. Morðið vakti geysimikla athygli í bænum þar sem þetta var fyrsta morðið sem þar hafði verið framið í mannaminnum. Mikið var fjallað um málið í fjölmiðlum, bæði í bæjarblaðinu í Bryne, þar sem Frosti starfaði og einnig í útvarpi og sjónvarpi um allan Noreg.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Einn frægasti strokufangi Vestur-Þýskalands, bankaræninginn Ludwig Lugmeier, var handtekinn fyrir hreina tilviljun af fimm óvopnuðum reykvískum lögreglu- mönnum að kvöldi föstudagsins 29. júlí árið 1977.Í kjölfarið fylgdi mikil umfjöllun innlendra sem erlendra fjölmiðla af atburðinum, sem þótti með þeim merkari hér á landi. Eftir handtökuna endur- heimtust 277 þúsund mörk úr ránsfengnum. Nokkrum dögum seinna tóku um 50 þýskir lögreglumenn með alvæpni á móti Lugmeier þegar íslenskur rannsóknarlögreglumaður skilaði honum af sér á flug- vellinum í Frankfurt. Þar með lauk ævintýralegum og átakanlegum 18 mánaða flótta hans undan réttvísinni vítt og breytt um heiminn. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Þetta er frásögn um það hvernig líf manns getur breyst, þegar örlögin leika sitt duttlungafulla spil, hvernig ósköp venjulegur og rólegur maður breytist í ógnvæn- legan Rambó. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Fimmtudagurinn 3. nóvember 1988 hófst eins og hver annar dagur fyrir starfs- liðið á pósthúsinu við Købmagergade í Kaupmannahöfn. Líkt og venjulega var tekið á móti verðmætasendingum snemma morguns. Í þessum sendingum var m.a. að finna háar peningaupphæðir frá bönkum og pósthúsum um allt land sem voru sendar áfram í Nationalbanken. Þegar verið var að vinna með verðmætasending- arnar var farið eftir sérstökum öryggisreglum til að gera það erfitt eða ómögulegt að ræna þeim. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Þegar talað er um rannsóknarlögreglumenn og störf þeirra dettur fólki oftast í hug alvarleg ofbeldismál, fíkniefnamál eða fjársvikamál. Þessi frásögn sýnir vel að rannsóknir umferðarslysa geta ekki síður verið flóknar og umfangsmiklar.Nöfnum manna hefur verið breytt en það skal tekið fram að þótt aðalpersónurnar séu kallaðar íslenskum nöfnum eru þær af erlendum uppruna. Allar ljósmyndir voru teknar af rannsóknardeild lögreglunnar í Hafnarfirði nema 2. mynd sem er frá Vegagerð ríkisins.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Meðal verkefna efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjórans er móttaka tilkynninga sem bankastofnunum og fleiri aðilum ber að senda lögreglu, hafi þeir grun um að fjármunir, sem einstaklingar eða lögaðilar höndla með, hafi verið fengnir með ólögmætum hætti, eins og nánar er lýst í lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti. Umtalsverður fjöldi slíkra tilkynninga berst á ári hverju, sem margar hverjar koma að miklu gagni við uppljóstrun ýmissa brota. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £4.49

    Fáir menn verða goðsagnir. Enn færri verða það í lifanda lífi. Á okkar dögum er jafn- vel einungis hægt að nefna John F. Kennedy, Móður Teresu og Nelson Mandela. Í heimi afbrotanna kemur sjaldan fyrir að nokkur maður verði goðsögn. Þó þekkjast nokkur dæmi þess að afbrotamaður hafi orðið að goðsögn eftir dauða sinn, eins konar Hrói höttur með tímanum. Sjaldan fer þannig um afbrotamann meðan hann er sjálfur á lífi. Undantekning frá reglunni er þó til dæmis enski lestar- ræninginn Ronald Biggs. Það er Svíinn Clark Olofs- son sem hefur komist næst því að verða lifandi afbrota- goðsögn á Norðurlöndum. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £5.99

    Í þessari fjórðu bók í bókaflokknum Norræn Sakamál eru alls fjórtán frásagnir af ólíkum sakamálarannsóknum og baráttu lögreglunnar við ýmiskonar glæpastarfsemi. Þar á meðal eru fjórar íslenskar sögur. Efni bókarinnar helgast að öllu jöfnu af því sem markverðast hefur verið að gerast í sakamálarannsóknum á Norðurlöndunum á liðnum misserum. Efnisvalið kann því að vera mismunandi á milli ára, allt eftir því hvaða frásagnir eru í boði hverju sinni í sameiginlegum gagnabanka Norrænu Sakamálabókarinnar.Öll þau erlendu mál sem fjallað er um í bókinni að þessu sinni hafa vakið mikla athygli og umræðu á þeim slóðum þar sem þau gerðust. Þau hafa beint sjónum manna að rannsóknum málanna og dómsuppkvaðningum í kjölfar þeirra.Því er haldið fram að heimurinn hafi breyst mikið á síðari árum, ekki síst eftir hryðjuverkaárásirnar í Bandaríkjunum þann 11. september 2001. Það gerist sífellt algengara að ýmsir öfgahópar beini sjónum umheimsins að sér og sjónarmiðum sínum með ýmiskonar ódæðisverkum. Sem betur fer höfum við íslendingar sloppið við þessa ógn fram til þessa. Aðrar norðurlandaþjóðir hafa ekki verið jafn heppnar og þar hafa verið starfandi skipulagðir hópar hryðjuverkamanna eins og fram kemur í athyglisverðri grein Per Larsen yfirlögregluþjóns í Kaupmannahöfn. Hann fjallar um þau hryðjuverk sem framin hafa verið í Danmörku og hópana sem staðið hafa að baki þeim.Það er von okkar sem stöndum að útgáfu þessarar bókar, að lesendur hennar verði einhvers vísari um hið fjölbreytta starf lögreglumannsins nú á tímum. Ef svo er, þá er tilganginum með útgáfu bókarinnar náð.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Hér er sagt frá kræfum náunga sem heimsótti Ísland sumarið 2000. Hann kom víða við og stal miklum verðmætum. Sumt af þýfinu fannst hérlendis en annað hafði verið sent úr landi. Tveir rannsóknarlögreglumenn fóru til Rúmeníu og sóttu mikið af munum sem voru frá Íslandi.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Í janúarmánuði 1995 gerði langvarandi óveður á Vestfjörðum með stöðugri snjó- komu og hvassviðri. Snjóflóð tóku sinn toll og kostuðu mörg mannslíf í þessu litla samfélagi, auk þess sem þau ollu miklu eignatjóni. Í heila viku ógnaði snjóflóðahætta nánast allri byggð á stóru svæði. Þjóðin öll stóð frammi fyrir at- burðum sem fæsta hafði órað fyrir að gætu gerst. Allir þeir sem börðust við ofurefli máttarvaldanna á hamfarasvæðinu lögðu meira af mörkum en hægt er að ætlast til af mannlegum mætti. Við vottum þeim virðingu okkar. Önundur Jónsson yfirlögregluþjónn á Ísafirði var við störf á þessum tíma. Hann segir hér sögu sína. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Atburðarásin hófst með „venjulegum" gámabruna um mitt sumarið 2006. Þá gat enginn gert sér í hugarlund að þetta væri upphafið að tíu mánaða langri rannsókn þar sem 16 eldsvoðar voru rannsakaðir.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49

    Á fjögurra ára tímabili urðu fjórir eldsvoðar í þorpi úti á landi sem sami maður var valdur af. Aldrei féll grunur á hann fyrr en eftir síðasta eldsvoðann og má segja að hann hafi komið upp um sig sjálfur. Hér á eftir verður hann kallaður X. Þegar upp komst að maðurinn hafði kveikt í þegar síðasti bruninn átti sér stað var farið að ganga á hann með hina brunana og að lokum játaði hann að eiga þar hlut að máli líka. Mikið tjón varð í þessum eldsvoðum en í a.m.k. einu tilfelli leit út fyrir að hann hefði bjargað einu fyrirtæki á staðnum frá stjórtjóni með vasklegri framgöngu áður en slökkviliðið kom á staðinn og fékk hann mikla viðurkenningu fyrir. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Klukkan 07.45 að morgni miðvikudagsins 19. maí 1999 hófst aðgerðin „Hestur" með því að Atle Hamre tamningamaður og vagnökumaður var handtekinn.Efnahagsbrotadeild ríkislögreglunnar og fleiri deildir höfðu í nokkrar vikur unnið að rannsókn málsins ásamt lögreglunni í Sandefjord og Larvik en málið var stærsta og umfangsmesta fjárkúgunarmál sem þá hafði verið rannsakað í landinu. Næstu daga þróaðist málið enn frekar og reyndist ekki eiga sér hliðstæðu í Noregi. Að lokum var Atle Hamre dæmdur til þungrar refsingar fyrir að hafa staðið á bak við fjárkúgun upp á 28 milljónir norskra króna.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Rannsóknarlögreglumenn á bakvakt vita ekki á hverju þeir eiga von í upphafi vaktarinnar. Þann sem þetta skrifar grunaði ekki að hann þyrfti að rannsaka mál þar sem samkvæmi ungmenna hafði snúist upp í blóðuga árás, en þar munaði litlu að ungur maður léti lífið. Það kostaði mikla vinnu og flókna rannsókn að ljúka málinu, þótt ekki tækist að upplýsa hvert atriði.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Þorsteinn Þ. Hraundal er einn af brautryðjendunum í þjálfun og vinnu með fíkniefnaleitarhunda á Íslandi. Hér segir hann frá upphafi þjálfunar og vinnu með slíka hunda og þeim sem þar voru í fararbroddi. Síðan segir hann smellna sögu um mál sem leitarhundur hans átti mestan heiður af því að upplýsa.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Þriðjudaginn 16. júní 2002, kl. 06.45, ók hinn 33 ára gamli Janne (nafni breytt) bíl sínum í miðborg Helsinki eftir Mannerheimsvegi, í átt að Kamppitorgi, á leið til vinnu sinnar við byggingarframkvæmdir í miðborg Helsinki. Janne hafði lagt af stað í vinnuna frá Ruskeasuo, garðlandahverfi u.þ.b. þrjá kílómetra frá miðborg Helsinki, þar sem hann átti bústað.Dagurinn átti að verða eins og hver annar vinnudagur og Janne grunaði síst að þessi nýbyrjaði vinnudagur yrði sá síðasti í lífi hans, og raunar hans hinsti dagur. Hann beygði af Mannerheimsveginum inn á Nyrðri-Járnbrautargötu, og meðan hann beið eftir grænu umferðarljósi á móts við Hótel Helka sprakk Opel Kadett Caravan-bíllinn hans í loft upp.Sprengingin var svo kröftug að bíll Jannes gjöreyðilagðist og olli talsverðum skemmdum í nágrenninu. Sjálfur lést Janne þegar í stað.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £2.99 - 4.49

    Sundurstungið lík af erlendum, óþekktum manni, bundið með kaðli og innpakkað í svarta ruslapoka, sökkt í höfn á fáförnum stað með keðjuhönk og gúmmíbobbingi, var sá veruleiki sem blasti við íslensku lögreglunni í febrúar 2004.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Finnland hefur lengi verið þekkt fyrir að vera réttarríki. Í Finnlandi hafa alþjóðlegir sáttmálar verið virtir út í ystu æsar. Dómur fyrir afbrot er byggður á traustum sönnunum. Játning ákærða nægir ekki einu sinni sem grundvöllur fyrir dómi. Þegar ákærði neitar sök, þarf enn öruggari sannanir. Mistök eru ekki leyfð í dómsmálum.Í Turku komst upp um versta klúður sem átt hefur sér stað í nútíma réttarfarssögu Finnlands. Ætli það hefði ekki komið sér best fyrir trúverðugleika lögreglu, saksóknara og dómstóla sem og áfrýjunaraðila að það hefði fallið í gleymsku?Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

Join thousands of book lovers

Sign up to our newsletter and receive discounts and inspiration for your next reading experience.