We a good story
Quick delivery in the UK

Norræn Sakamál 2004

book 2004 in the Norræn Sakamál series

About Norræn Sakamál 2004

Í þessari fjórðu bók í bókaflokknum Norræn Sakamál eru alls fjórtán frásagnir af ólíkum sakamálarannsóknum og baráttu lögreglunnar við ýmiskonar glæpastarfsemi. Þar á meðal eru fjórar íslenskar sögur. Efni bókarinnar helgast að öllu jöfnu af því sem markverðast hefur verið að gerast í sakamálarannsóknum á Norðurlöndunum á liðnum misserum. Efnisvalið kann því að vera mismunandi á milli ára, allt eftir því hvaða frásagnir eru í boði hverju sinni í sameiginlegum gagnabanka Norrænu Sakamálabókarinnar. Öll þau erlendu mál sem fjallað er um í bókinni að þessu sinni hafa vakið mikla athygli og umræðu á þeim slóðum þar sem þau gerðust. Þau hafa beint sjónum manna að rannsóknum málanna og dómsuppkvaðningum í kjölfar þeirra. Því er haldið fram að heimurinn hafi breyst mikið á síðari árum, ekki síst eftir hryðjuverkaárásirnar í Bandaríkjunum þann 11. september 2001. Það gerist sífellt algengara að ýmsir öfgahópar beini sjónum umheimsins að sér og sjónarmiðum sínum með ýmiskonar ódæðisverkum. Sem betur fer höfum við íslendingar sloppið við þessa ógn fram til þessa. Aðrar norðurlandaþjóðir hafa ekki verið jafn heppnar og þar hafa verið starfandi skipulagðir hópar hryðjuverkamanna eins og fram kemur í athyglisverðri grein Per Larsen yfirlögregluþjóns í Kaupmannahöfn. Hann fjallar um þau hryðjuverk sem framin hafa verið í Danmörku og hópana sem staðið hafa að baki þeim. Það er von okkar sem stöndum að útgáfu þessarar bókar, að lesendur hennar verði einhvers vísari um hið fjölbreytta starf lögreglumannsins nú á tímum. Ef svo er, þá er tilganginum með útgáfu bókarinnar náð. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

Show more
  • Language:
  • Unknown
  • ISBN:
  • 9788726523492
  • Published:
  • August 17, 2020
Delivery: Immediately by email

Description of Norræn Sakamál 2004

Í þessari fjórðu bók í bókaflokknum Norræn Sakamál eru alls fjórtán frásagnir af ólíkum sakamálarannsóknum og baráttu lögreglunnar við ýmiskonar glæpastarfsemi. Þar á meðal eru fjórar íslenskar sögur. Efni bókarinnar helgast að öllu jöfnu af því sem markverðast hefur verið að gerast í sakamálarannsóknum á Norðurlöndunum á liðnum misserum. Efnisvalið kann því að vera mismunandi á milli ára, allt eftir því hvaða frásagnir eru í boði hverju sinni í sameiginlegum gagnabanka Norrænu Sakamálabókarinnar.
Öll þau erlendu mál sem fjallað er um í bókinni að þessu sinni hafa vakið mikla athygli og umræðu á þeim slóðum þar sem þau gerðust. Þau hafa beint sjónum manna að rannsóknum málanna og dómsuppkvaðningum í kjölfar þeirra.
Því er haldið fram að heimurinn hafi breyst mikið á síðari árum, ekki síst eftir hryðjuverkaárásirnar í Bandaríkjunum þann 11. september 2001. Það gerist sífellt algengara að ýmsir öfgahópar beini sjónum umheimsins að sér og sjónarmiðum sínum með ýmiskonar ódæðisverkum. Sem betur fer höfum við íslendingar sloppið við þessa ógn fram til þessa. Aðrar norðurlandaþjóðir hafa ekki verið jafn heppnar og þar hafa verið starfandi skipulagðir hópar hryðjuverkamanna eins og fram kemur í athyglisverðri grein Per Larsen yfirlögregluþjóns í Kaupmannahöfn. Hann fjallar um þau hryðjuverk sem framin hafa verið í Danmörku og hópana sem staðið hafa að baki þeim.
Það er von okkar sem stöndum að útgáfu þessarar bókar, að lesendur hennar verði einhvers vísari um hið fjölbreytta starf lögreglumannsins nú á tímum. Ef svo er, þá er tilganginum með útgáfu bókarinnar náð.

Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

User ratings of Norræn Sakamál 2004



Find similar books
The book Norræn Sakamál 2004 can be found in the following categories:

Join thousands of book lovers

Sign up to our newsletter and receive discounts and inspiration for your next reading experience.