We a good story
Quick delivery in the UK

Books by Ýmsir Höfundar

Filter
Filter
Sort bySort Popular
  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Aldrei fyrr í sænskri afbrotasögu hefur maður bæði viðurkennt og hlotið dóm fyrir að misnota lík kynferðislega. En haustið 2006 gerðist það í Surahammar. Þá var 43 ára starfsmaður í kirkjugarðinum handtekinn, grunaður um að vera náriðill.Rannsóknin var mjög sérstök því að maðurinn viðurkenndi strax á byrjunarstigi málsins að hafa gert það sem hann var sakaður um. Þar með lauk málinu þó ekki því að maðurinn viðurkenndi einnig að hafa kveikt í kirkju árið 1998 en það mál var óupplýst.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Rannsókn kynferðisbrota er oft frábrugðin öðrum lögreglurannsóknum. Þetta eru viðkvæm mál, fórnarlambið er andlega niðurbrotið, sjaldnast eru vitni að atburðinum sjálfum og sönnunargögn oft ekki til. Í raun standa oft orð brotaþola gegn orðum sakbornings. Miðað við þann fjölda sem leitar til Neyðarmóttöku fórnarlamba kynferðisbrota og Stígamóta er það aðeins lítill hluti þolenda kynferðisbrota sem leggur fram kæru til lögreglu og ekki fara öll kærð mál fyrir dóm. Sönnunarbyrði er þung þannig að oft er erfitt að sanna að kynferðisbrot hafi átt sér stað. En rannsóknin er ekki eingöngu til að sanna að kynferðisbrot hafi átt sér stað heldur einnig til að kanna hvort svo hafi ekki verið. Í einstaka tilvikum getur verið um ranga kæru að ræða og rangar sakir. Þá torveldar það oft rannsóknina að í sumum málum, sem koma til rannsóknar, er langt liðið frá atburðinum sjálfum, lífsýni finnast ekki auk þess sem ekkert vitni er til að staðfesta brotið. Í frásögn þessari er greint frá nokkrum málum sem ákært var í og sakborningar hlutu dóma. Ekki verður farið nákvæmlega í rannsókn málsins eða ákæruliði en aðeins kynnur þáttur rannsóknarlögreglu í málinu. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Með bættari tengslum Íslands við umheiminn fer þeim fjölgandi, erlendu aðilunum, sem rekur á fjörur íslenskrar lögreglu í tengslum við lögbrot. Sumum þeirra hefur tekist að smjúga úr greipum lögreglu víðs vegar um heiminn í brotastarfsemi sinni en eru svo gripnir hér, þar sem þeir misreikna hversu fámenn þjóðin er og hvað fáir valkostir eru til að komast að og frá landinu. Á sumarmánuðum 2005 munaði minnstu að einum slíkum tækist ætlunarverk sitt með fjársvikuÖllum nöfnum hefur verið breytt.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Hvernig gat þetta gerst, spurðu margir sig þegar fréttist af hörmulegu sjóslysi sem varð svo til uppi í landsteinum við Reykjavík í september 2005. Skemmtibát, sem hafði verið á siglingu innan hafnarsvæðisins, var siglt á Skarfasker, sem er rúma 300 metra undan landi þar sem styst er, með þeim afleiðingum meðal annars að maður á fertugsaldri lést við ásiglinguna og fimmtug sambýliskona hans drukknaði eftir að bátnum hvolfdi er honum var siglt stórskemmdum frá skerinu. Dómsmálið vakti mikla athygli auk þess að vekja upp sterkar tilfinningar, jafnvel hjá fólki sem tengdist ekki þeim sem létust á nokkurn hátt. Ástæðan var líkast til sú að skipstjóri og eigandi bátsins, sem var ölvaður þegar ásiglingin átti sér stað, neitaði að hafa verið við stjórnvöl bátsins þegar hann steytti á skerinu og sagði konuna, sem drukknaði eftir ásiglinguna, hafa verið við stýrið, en þessi framburður skipstjórans gekk þvert á niðurstöður rannsókna lögreglu og réttarmeinafræðings. Þá hafði skipstjórinn ekki gripið til björgunarráðstafana af neinu tagi í kjölfar ásiglingarinnar heldur siglt bátnum frá skerinu, þó ekki stystu leið að landi, uns honum hvolfdi. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Sumarið 1997 hófst ein umfangsmesta lögreglurannsókn sem fram hefur farið á Íslandi, rannsókn sem hefur gengið undir nafninu MÁLVERKAFÖLSUNARMÁLIÐ. Málið snerist um að forráðamaður stærsta uppboðshúss landsins var grunaður um að hafa falsað eða látið falsa hátt í 200 málverk eftir flesta þekktustu og dáðustu listmálara Íslands og síðan blekkt viðskiptavini til að kaupa verkin. Grunur lék á um að um skipulagða brotastarfsemi hefði verið að ræða sem hafi staðið yfir árum saman. Mikið var fjallað um málið í fjölmiðlum enda hafði það slík áhrif á málverkamarkaðinn á Íslandi að eftirspurn eftir myndverkum eftir látna, íslenska málara dróst verulega saman og verð féllu. Vantraust ríkti á íslenskum listaverkamarkaði sem varla hefur gróið um heilt enn. Áhrifin, sem málið hafði á feril og orðspor listamannanna sjálfra, voru þó enn alvarlegri, ekki síst þar sem þeir voru allir látnir og gátu því ekki sjálfir borið hönd fyrir höfuð sér. Segja má að tilraun hafi verið gerð til að breyta ásýnd og listamannaferli 13 af ástsælustu listmálurum Íslands. Heildarrannsókn málsins tók alls um 6 ár en ekki var unnt að beita hefðbundnum rannsóknaraðferðum nema að litlu leyti enda hafði engin sambærileg rannsókn fyrr verið framkvæmd á Íslandi. Þrátt fyrir nákvæmar athuganir víða um heim gátu rannsóknarar ekki fundið erlendar rannsóknir sem unnt var að byggja einstaka rannsóknarþætti á heldur urðu þeir að leita til fjölmargra innlendra og erlendra sérfræðinga og raða einstökum niðurstöðum þeirra saman í rannsóknarniðurstöður. Í þessari grein verður fjallað um fyrri hluta þessa máls sem varðar 3 málverk en sérstök ákæra var gefin út vegna þess hluta. Um síðari hluta málsins, sem snerist um 180 myndverk, verður fjallað síðar. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Öðru hverju heyrast sögur um misklíð milli nágranna sem endar með fjandskap og málaferlum. Sem betur fer lýkur slíkum málum afar sjaldan með mannvígum en nágrannaerjur í Bergen enduðu þó með grimmdarlegu morði aðfaranótt 6. júní 2003.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Laugardaginn 20. desember 2003, um kl. 01.30, varð ung kona fyrir verstu árás sem kona getur orðið fyrir í velferðarsamfélagi okkar, sem kannski er best skipulagða samfélag í heimi. Konan var 29 ára gömul og var að læra uppeldisfræði. Henni hafði verið boðið í jólahlaðborð í Óðinsvéum og hún hjólaði heim á leið úr miðborginni. Þær hjóluðu saman tvær vinkonur en fóru svo hvor sína leið og eftir það varð konan fyrir grófri kynferðislegri árás.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £4.49 - 241.49

    Það er ekki hægt að lýsa með orðum þeim hryllingi og vanlíðan sem Bobby, sem var aðeins tíu ára, varð að þola heima hjá sér. Á margra vikna tímabili í kringum áramótin 2005–2006 þurfti drengurinn að þola grófar misþyrmingar, svo grófar að síðar ákváðu dómstólar að flokka þær sem pyntingar. Þessar misþyrmingar leiddu að lokum til dauða Bobbys.Eftir að Bobby var látinn reyndu móðir hans og unnusti hennar að fela dauðsfallið með því að tilkynna að Bobby væri horfinn, á svipuðum tíma og þau sökktu líki hans í vatn nærri heimili þeirra.Það var röð ýmissa aðstæðna sem að lokum kom lögreglunni á sporið og varð til þess að málið upplýstist.Móðirin og unnusti hennar voru handtekin og dæmd til langrar fangelsisvistar, þó ekki fyrir morð. „Stjúpfaðir" drengsins áfrýjaði dómi sínum til Hæstaréttar sem í árslok 2006 ákvað að mál hans væri ekki tækt fyrir Hæstarétt.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Það að fá arf getur verið ánægjulegur viðburður en í þessu tilviki hafði það dauðann í för með sér.Henrik Nordström Hansen var 51 árs gamall og hafði erft tvær milljónir danskra króna eftir stjúpföður sinn þegar hann fannst látinn í kjallara einbýlishúss á Írisvegi 6 í Óðinsvéum. Slökkvilið hafði áður verið kallað á staðinn vegna eldsvoða í húsinu. Líkskoðun sýndi að hann hafði látist áður en eldurinn kom upp og að hann hafði hlotið áverka eftir barefli.Rannsóknin beindist fljótlega að því hvort arfurinn væri bein ástæða fyrir dauða hans.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Flestir í hinum vestræna heimi, sem eru komnir á fimmtugsaldur eða eru eldri, muna eftir tveimur atburðum frá sumrinu 1969: Þegar menn stigu fyrst fæti á tunglið og morðinu á leikkonunni Sharon Tate. Morðið á þessari ungu, ófrísku konu vakti mikla athygli af tveimur ástæðum, annars vegar var morðæðið óvanalega ruddalegt og hins vegar voru morðin á fimm manns og ófæddu barni framin af afbrigðilegri „fjölskyldu" eða hópi sem stjórnað var af Charles Manson en honum er oft lýst sem hinum illa sjálfum, sem djöfli í mannsmynd.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49 - 4.49

    Tvær átján ára stúlkur fundust látnar á snævi þöktum vegi á Hallandsåsen síðla sunnudagsins 18. janúar 2004 og voru báðar skólausar og fáklæddar. Daginn áður hafði lögreglan fengið tilkynningu um að bíll annarrar stúlkunnar lægi illa skemmdur í skurði. Fjarlægðin frá fundarstað bílsins til stúlknanna var um fimm kílómetrar. Fjöldi spurninga helltist yfir okkur. Hvern eða hverja höfðu stúlkurnar hitt? Af hverju höfðu þær verið skildar eftir á afskekktum malarvegi, án fótabúnaðar og yfirhafna?Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Málið, sem sagt er frá hér á eftir, hófst með einu símtali frá Þýskalandi. Það þróaðist í góðri samvinnu milli landanna í það að verða með stærri fíkniefnamálum sem fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík hefur rannsakað. Vissulega voru sumir Íslendinganna, sem komu við sögu, ekki nýliðar í þessum málum en þetta var nýtt skipulag sem aðilar þess töldu öruggt. Annað kom í ljós eins og fram kemur í þessari frásögn. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Þriðjudagurinn 6. júlí 2004 byrjaði eins og hver annar dagur í tæknideildinni. Starfsmenn hittust yfir kaffibolla og ræddu um verkefni síðustu helgar og ýmsar rannsóknir þeim tengdar. Árið hafði verið annasamt fram að þessu en þetta yrði líklegast bara viðráðanlegt sumar, ekki endalausir staflar af skýrslum, verkbeiðnum og rannsóknargögnum. Engan okkar grunaði að eftir hádegi þennan sama dag yrði komin upp önnur staða og við flestir uppteknir við rannsóknir og skýrslugerð næstu tvo mánuðina. Tæknideild LR starfar á landsvísu og megum við búast við því að geta verið ræstir út hvert á land sem er og á hvaða tíma sólarhringsins sem er. Vont en það venst, eins og segir einhvers staðar. Við vorum grunlausir um að tveimur sólarhringum áður, aðfaranótt sunnudagsins 4. júlí, hafði rúmlega þrítug kona verið myrt á hrottafenginn hátt, skammt frá lögreglustöðinni við Hverfisgötu.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Málið fékk fljótlega heitið Möllevangsmálið í rannsókninni og í stórum fyrirsögnum fjölmiðla. Tilefnið var íkveikja í Möllevangsskólanum í Árósum 14. janúar 2003, kl. 00.38, sem leiddi til þess að heil álma brann til grunna en hún var 1200 fermetrar og metin á um 20 milljónir danskra króna. Auk íkveikjunnar í Möllevangsskólanum fjallaði málið um mörg önnur alvarleg afbrot, og náði einnig yfir brot sem áður hafði verið fjallað um með stórum fyrirsögnum í dagblöðunum. Meðal annars voru þetta alvarleg skemmdarverk sem höfðu verið framin fjórum sinnum á 400 grafreitum í tveimur kirkjugörðum í Árósum og Hornslet.Þá var fjallað um grimmdarleg dráp á fjórum kanínum við leikvöllinn Barnaland.Sömu piltarnir höfðu einnig kveikt tvisvar í Aðventukirkjunni, kveikt í Samsögötuskóla, í Elísu Smith-skólanum, í sveitabýli í Hornslet, auk þess að hafa kveikt þrisvar í bílum.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Friðurinn á hvítasunnuhátíðinni árið 2005 var rofinn með frétt af óhugnanlegu manndrápi í fjölbýlishúsi í Kópavogi. Eins og stundum áður virtist það hafa verið óþarfi að þetta gerðist og erfitt að skilja ástæður þess. En síðar kom í ljós að þarna höfðu legið að baki aldagamlir siðir og hefðir fjarlægs menningarsamfélags og trúarbragða sem Íslendingum voru ókunnug. Það var ekki auðvelt að setja sig inn í þau sterku áhrif sem slíkur arfur hefur á fólk sem elst upp við þessar aðstæður. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £5.49 - 6.99

    Þú er nú að handleika 7. bókina í ritröðinni Norræn Sakamál. Þessi bók er sérstök að því leyti að nær helmingur hennar eru frásagnir af íslenskum sakamálum. Og þau eru öll sérstök og áhugaverð. Sum þeirra vöktu sérstakan áhuga almennings og voru mikið á forsíðum dagblaða meðan þau voru í rannsókn. Þau höfðu líka áhrif á íslenskt samfélag og einstöku áhrifa þeirra gætir enn í dag, mörgum árum síðar.Þar má nefna málverkafölsunarmálið en afleiðingar þess hafa enn áhrif á verð íslenskra málvera á uppboðsmörkuðum að sögn kunnugra. Frásögnin um slysið á Viðeyjarsundi er ógleymanleg og eftirmálar þess eru enn á dagskrá fjölmiðla. Líkfundarmálið á Neskaupstað var forsíðuefni dagblaða í margar vikur, það komst einnig á síður erlendra blaða og enn er mjög áhugavert að lesa um það sem raunverulega gerðist.Sveðjumálið í Garðabæ er frásögn af máli sem olli skjálfta í heilu bæjarfélagi og áhrif þess finnast enn í dag. Frásögnin um kynferðisbrot er nokkuð sem allir ættu að lesa því hún er ekki aðeins frásögn af sérstökum og áhugaverðum málum, heldur líka lýsing á þessum viðkvæma og erfiða málaflokki sem allir ættu að kynnast nánar.Hundurinn leysti málið er hugnæm frásögn af því hvað fíkniefnahundur er á margan hátt hæfileikaríkari en við sjálfir. Sagan allt í lagi þið náðuð mér lýsir því vel að við erum ekki lengur afskekktir heldur í miðri hringiðu afbrota heimsins þótt við gerum okkur það ekki alltaf ljóst.Auk þessara íslensku frásagna eru greinar um mál frá hinum Norðurlöndunum. Þær eru margar mjög sérstakar og þess eðlis að enginn ætti að láta þær fram hjá sér fara. Þær eru líka spennandi og margt hægt af þeim að læra. Það er tvímælalaust að frásagnirnar í þessari bók eru bæði áhugaverðar og lærdómsríkar og enginn ætti að láta þær ólesnar.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Það hljómar ef til vill undarlega að síbrotamaður fyllist siðferðilegri hneykslun og móðgun vegna atburðar sem snertir hann ekki sjálfan. En í ágúst 2003 var slík móðgun einmitt orsök fyrir grimmúðlegu, tvöföldu morði í Lahtis.Með þessum verknaði vildi morðinginn fá uppreisn til handa systur sinni fyrir það sem hafði komið fyrir hana nálægt 20 árum áður, nokkuð sem hann hafði fengið vitneskju um fyrir tilviljun. Systirin hafði ekki áhuga á að finna neinn í fjöru vegna þessa atburðar. En morðingjanum fannst að gerðir hans ættu rétt á sér og hann iðraðist einskis, – heldur ekki þótt hann við sama tækifæri myrti saklausa manneskju sem var sambýliskona fórnarlambsins.Nöfn sögupersónanna eru tilbúin.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Hér segir frá 33 ára manni sem verður eftirleiðis kallaður Per. 11. maí 2003 var honum rænt frá sambýlinu Kanalgården í Næstved og hann fluttur á sveitabýli í Dannemare, þar sem hann mátti þola mjög gróft og hættulegt ofbeldi og misþyrmingar á meðan grillveisla var haldin þar. Eftir grillveisluna var hann lokaður inni í heila viku, á ýmsum stöðum á Lálandi, þar til honum tókst að flýja.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    5. nóvember 2002 var ég á kvöldvakt og um klukkan 19.00 fékk ég símtal frá rannsóknarlögreglunni í Þrændalögum. Erindið var að biðja mig um aðstoð vegna atburðar sem þeir höfðu frétt af. Blaðaljósmyndari hafði hringt í þá og spurt hvaða upplýsingar þeir hefðu um dauðsfall í Lade. Lítil stúlka átti að hafa dottið út um glugga þar og látist. Stúlkan hafði að sögn verið flutt á St. Olavs-sjúkrahúsið með sjúkrabíl.Lögreglan hafði ekki fengið neina tilkynningu um þetta eftir hefðbundnum leiðum. Tilkynningin um slysið hafði farið beint til bráðamóttöku sjúkrahússins en lögreglan hafði ekki verið látin vita. Hjá miðstöð rannsóknarlögreglunnar í Þrændalögum fékk ég þær litlu upplýsingar sem þeir höfðu um málið. Álitið var að þriggja ára stúlka hefði dottið út um glugga eða niður frá húsi og látist í kjölfarið.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.49 - 4.49

    Aðfaranótt 22. apríl, þann þriðja í páskum, árið 2003, var verðmætaflutningabíll á vegum Securitas rændur við skrifstofu Sparbanken Tanum í Grebbestad og voru fimm grímuklæddir menn að verki. Ránið var mjög gróft og mjög vel skipulagt. Ræningjarnir voru vopnaðir AK4 veiðirifflum, afsöguðum haglabyssum og skammbyssum. Þeir voru líka með sprengiefni með sér til að geta sprengt upp dyrnar á flutningabílnum ef verðirnir mundu ekki opna þær. Á meðan á ráninu stóð hótuðu ræningjarnir vörðunum lífláti, meðal annars með að öskra: "Ef lögreglan kemur skjótum við ykkur!"Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Að myrða manneskju er alvarlegasti glæpur sem hugsast getur. Það er erfitt að flokka morð eftir því hversu alvarlegt það er en grimmdarlegt morð á óléttri unglingsstúlku hlýtur að vera með því óhugnanlegasta sem hægt er hugsa sér. Auk þess er erfitt að gera sér í hugarlund hvaða refsing sé hæfileg fyrir annan eins verknað. Í þessu máli var það barnsfaðirinn sem var morðinginn, sem var ekki til að gera málið auðveldara. Og einkennilegt var hve ákaflega tilfinningalaus og kaldlyndur hann reyndist vera eftir að sambýliskona hans hvarf. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Fangelsi í þrjú ár og í tvö ár og tíu mánuði urðu afleiðingarnar fyrir karlmann og konu frá Balkanlöndunum sem höfðu stundað nútímaþrælahald, verslun með stúlkur í kynferðislegum tilgangi. Dómarnir voru kveðnir upp í Gautaborg vorið 2004 og það var í fyrsta skipti sem dæmt var fyrir brot sem þessi í Svíþjóð. Hjúin voru dæmd fyrir að hafa neytt pólska stúlku til að selja sig í Danmörku og Svíþjóð. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Klukkan 09.10 miðvikudaginn 17. september 2003 sprakk sprengja í svartri Toyota Corolla-bifreið sem var nýfarin út af bifreiðastæði við Amtssjúkrahúsið í Glostrup. Bifreiðin var komin út á götuna sem liggur frá bifreiðastæðinu þegar sprengjan sprakk.Ökumaður bifreiðarinnar var Mickey Larsen sem var 32 ára og fyrrum Bandidosmeðlimur og lést hann samstundis.Sprengingin var svo öflug að bifreiðin hentist um 20 metra í loft upp og brak úr henni ásamt líkamspörtum dreifðist yfir mjög stórt svæði. Strax eftir sprenginguna kviknaði eldur í bifreiðinni og allt brann sem brunnið gat.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Að morgni dags fannst lík stúlku liggjandi á stétt utan við íbúðarblokk í Kópavogi. Í fljótu bragði gátu menn haldið að hún hefði framið sjálfsmorð með því að stökkva fram af svölum. Brátt kom þó ýmislegt í ljós sem benti til annars en það reyndist þrautin þyngri að sanna hvað þarna hafði gerst. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    Mengun og mengunarvarnir var nokkuð sem Íslendingar höfðu litlar áhyggjur af langt fram eftir síðustu öld. Að lokum áttuðu menn sig þó á nauðsyn þess að vernda umhverfið fyrir hættulegum úrgangi og mengun af hans völdum. Sett voru lög og reglugerðir um umhverfisbrot en erfiðlega gekk að framfylgja þeim. Hér á eftir er áhugaverð frásögn um fyrsta málið um mengun á landi sem var rannsakað til loka og tekið til dóms. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 3.49

    "Við ætluðum bara í skíðaferð til Bergen." Þetta var útskýring þriggja Rúmena eftir að lögreglan handtók þá grunaða um að hafa afritað greiðslukort margra aðila í Noregi. Lögreglumönnum, sem komu að yfirheyrslum yfir Rúmenunum, fannst framburður þeirra oft vera á mörkum gríns og alvöru. Lögreglumönnum, upprunnum í sunnanverðum Noregi, með góða þekkingu á staðháttum, fannst umhugsunarefni að menn færu í skíðaferð frá Rúmeníu til Noregs og þá til "vetraríþróttastaðarins" Bergen. Þetta var meðal annars eitt þeirra atriða sem lögreglan benti á við meðferð málsins fyrir dómi. Hinir grunuðu höfðu unnið heimavinnuna sína en ekki alveg nógu vel.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £5.49 - 6.99

    Hér kemur fyrir sjónir lesenda sjötti árgangur og þar með sjötta bókin með norrænum sakamálum. Í þessari bók eru fimm íslenskar frásagnir sem ég held að séu áhugaverðar og þess virði að gefa sér tíma til að lesa þær. Þessar frásagnir eru ólíkar bæði í efni og framsetningu. Hér er frásögn af stóru fíkniefnamáli, sem ekki er aðeins sérstakt vegna þess mikla magns af fíkniefnum sem er fjallað um að hafi verið flutt inn til Íslands, heldur einnig af því að þetta mál var árangur af sérstöku samstarfi íslenskra og þýskra lögregluyfirvalda sem bar svo góðan árangur. Þá er frásögn af manndrápsmáli og rannsókn þess lýst af tæknideildarmönnum í Reykjavík sem segja frá því hvernig sannleikurinn birtist þeim í blóðinu á vettvangi. Í þessari bók eru einnig frásagnir af tveimur öðrum manndrápsmálum sem hvort um sig er sérstakt, bæði vegna þess hvernig verknaðirnir eru framdir og einnig vegna þeirra aðila sem málin fjalla um. Annað þeirra lýsir því hvernig trúarbrögð og siðir, sem okkur eru fjarlæg, geta haft ótrúlega mikil áhrif á líf nútímafólks á Íslandi. Síðast en alls ekki síst er frásögn af máli um umhverfisbrot, en það varð fyrsta málið á sínu sviði, sem endaði með áfellisdómi. Þetta er skemmtileg og hlýleg frásögn sem mun falla öllum unnendum íslenskra náttúru vel í geð.Það er ekki síður áhugavert að lesa frásagnirnar frá hinum Norðurlöndunum. Þær fjalla um margvísleg efni og engin þeirra er annarri lík. Margar þeirra eru svo sérstakar að lesandinn hlýtur að hugsa með sér hvernig þetta geti eiginlega gerst. Það er líka mjög athyglisvert og fróðlegt að lesa um erfiðleika lögreglumannanna og þrautseigju þeirra við að leysa þessi mál þótt það hafi í sumum tilfellum tekið fleiri ár.Ég er viss um að lesendur hafa ánægju af að kynnast þessum málum og þeir verða einnig á margan hátt fróðari eftir lestur þeirra.Njótið vel!Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 6.49

    „ ... þegar ég kom auga á hann varð ég ringluð og fann fyrir svima. Án þess að hugsa mig um smeygði ég mér úr kjólnum og fleygði honum á gólfið. Nærbuxurnar voru rakar af svita og girnd. Ég dró þær niður og henti þeim í átt að kjólnum. Nakin brjóst mín strukust við svala gluggarúðuna. Spennan magnaðist og hlóðst upp í kviðnum. Hugurinn snerist allur um líkama unga mannsins, öruggar hreyfingar hans og sterka vöðva."Saga þessi er gefin út í samvinnu við sænska kvikmyndaframleiðandann Eriku Lust. Markmið hennar er að miðla mannlegu eðli og fjölbreytni þess í gegnum öflugar, ástríðufullar sögur af nánum kynnum, girnd og ást.Safnið inniheldur eftirfarandi erótískar smásögur:Sundlaugardrengur - Dísin og skógarpúkarnir - Spænska Sumarið - Leikur með herra X - Borðaðu með mér - Til hamingju, ástin mín - Tinder-leigubíllinn - Heltekin af Owen Gray - Numinn á brott - Læknirinn

  • by Ýmsir Höfundar
    £3.99 - 6.49

    Henry vinnur á olíuborpalli í Norðursjó. Hann vinnur tólf tíma vaktir, fjórtán daga í röð. Eftir hverja tveggja vikna törn fer hann í land í vaktafrí og hittir þá vini og einhleypa vinnufélaga. Nóttum ver hann með hinum ýmsu konum, veitir þeim unað og gefur tilfinningum sínum lausan tauminn. En að morgni segir hann bless. Reglan er einföld: Nýr dagur, ný kona. Hann gerir þó eina undantekningu. Hún heitir Clara...Saga þessi er gefin út í samvinnu við sænska kvikmyndaframleiðandann Eriku Lust. Markmið hennar er að miðla mannlegu eðli og fjölbreytni þess í gegnum öflugar, ástríðufullar sögur af nánum kynnum, girnd og ást.Safnið inniheldur eftirfarandi erótískar smásögur:Einn handlaginn - Femínistinn - Rauði demanturinn - Nýr vinur - Fylgdarsveinninn -Bílakynlíf - Á valdi herra míns - Minningar um þig - Sjóræningja Jenný - Legið á gægjum

Join thousands of book lovers

Sign up to our newsletter and receive discounts and inspiration for your next reading experience.