We a good story
Quick delivery in the UK

Mæðgnamorð og önnur mál…

By Ýmsir
About Mæðgnamorð og önnur mál…

„Samantekt fjögurra frásagnarverðra sakamála sem áttu sér stað á Norðurlöndunum í lok 20. aldar“ Árið 2001 telja fjórir finnskir unglingspiltar sig hafa framið hinn fullkomna glæp. Aðeins 98 tímum síðar eru þeir handteknir fyrir gróft morð. Í nágrannalandinu Noregi, beinast allra augu að þriggja ára stúlku sem talin er hafa dottið út um glugga og látist í kjölfarið. Það sem undarlegt þykir er að lögreglunni er ekki tilkynnt um málið. Á köldum vetrardegi í febrúar, fær lögreglan í Kolding einkennilegt símtal. Eigandi sumarbústaðar á eyjunni Fanø í Danmörku telur sig hafa séð grilla í barnsfót í brekku skammt frá eign sinni. Tilgáta hans reyndist rétt. Nokkrum árum síðar er fjölmörgum skotum hleypt af á torginu framan við járnbrautarstöðina í Slagelse. Forboðin ást hefur leitt til heiðursdráps á 18 ára gamalli stúlku um hábjartan dag. Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum. Höfundar frásagnanna í samantekt þessari eru: Kaj Nilsen, Jaakko Ridanpää, Trond Arne Ryeng og Arne Ellegaard.

Show more
  • Language:
  • Unknown
  • ISBN:
  • 9788727224527
  • Published:
  • November 18, 2024
Delivery: Published November 18, 2024

Description of Mæðgnamorð og önnur mál…

„Samantekt fjögurra frásagnarverðra sakamála sem áttu sér stað á Norðurlöndunum í lok 20. aldar“
Árið 2001 telja fjórir finnskir unglingspiltar sig hafa framið hinn fullkomna glæp. Aðeins 98 tímum síðar eru þeir handteknir fyrir gróft morð.
Í nágrannalandinu Noregi, beinast allra augu að þriggja ára stúlku sem talin er hafa dottið út um glugga og látist í kjölfarið. Það sem undarlegt þykir er að lögreglunni er ekki tilkynnt um málið.
Á köldum vetrardegi í febrúar, fær lögreglan í Kolding einkennilegt símtal. Eigandi sumarbústaðar á eyjunni Fanø í Danmörku telur sig hafa séð grilla í barnsfót í brekku skammt frá eign sinni. Tilgáta hans reyndist rétt.
Nokkrum árum síðar er fjölmörgum skotum hleypt af á torginu framan við járnbrautarstöðina í Slagelse. Forboðin ást hefur leitt til heiðursdráps á 18 ára gamalli stúlku um hábjartan dag.
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
Höfundar frásagnanna í samantekt þessari eru: Kaj Nilsen, Jaakko Ridanpää, Trond Arne Ryeng og Arne Ellegaard.

User ratings of Mæðgnamorð og önnur mál…



Find similar books
The book Mæðgnamorð og önnur mál… can be found in the following categories:

Join thousands of book lovers

Sign up to our newsletter and receive discounts and inspiration for your next reading experience.